ECTS: 6 einingar Kennslumisseri: Haust
Markmið: Nemendur - kanni og móti hugmyndir um hlutverk og áhrif upplýsingatækni í skólastarfi, - kynnist völdum dæmum um upplýsingatækni sem viðfangsefni í skólastarfi og notkun upplýsingatækni í sérkennslu - styrki kunnáttu sína í framsetningu efnis á vef með þróun verk- og ferilmöpppu.
Viðfangsefni: Á þessu inngangsnámskeiði er farið yfir upplýsingatækni og skólastarf og litið til margra átta. Nemendur takast á við ýmsar grundvallarspurningar, svo sem hlutverk tækninnar í skóla, þróun tækninotkunar í félagslegu ljósi, væntingar sem við tæknina eru bundnar og möguleg áhrif upplýsingatækni á nám og kennslu með hliðsjón af ýmsum greinasviðum og þáttum í skólastarfi. Jafnframt er á námskeiðinu lagður mikilvægur grunnur hvað snertir verklag, tæknilega færni og tæknilæsi. Vinnulag: Nemendur þróa verk- og ferilmöppu á vefnum, leita fanga á bókasafni og netinu, skoða dæmi um ýmsa nýbreytni og framsækið skólastarf, ræða saman á vefnum og miðla hver öðrum af því sem þeir verða vísari.
20.50.31 Upplýsingatækni og skólastarf
ECTS: 6 einingar
Kennslumisseri: Haust

Umsjónarkennari: Salvör Kristjana Gissurardóttir